STRÁ MRI - Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 - bréfsími 588 3044 - stra@stra.is





 

    

MRI WORLDWIDE

MRI WORLDWIDE, sem er stærsta ráðningastofa heims, varð til í apríl 1999 við sameiningu MRI (Management Recruiters International) og bresku ráðningastofunnar Humania International. MRI WORLDWIDE er dótturfyrirtæki bandarísku fyrirtækjasamsteypunnar CDI CORP. 
Umboðsskrifstofur MRI WORLDWIDE eru á annað þúsund talsins um allan heim og hjá þeim starfa 5000 ráðgjafar með aðgang að upplýsingabönkum sem geyma nærri 150 milljónir ferlisskrár og umsóknir.

  • MRI WORLDWIDE sinnir einkum ráðningum stjórnenda og sérhæfðs starfsfólks, með áherslu á að leita uppi rétta starfsmanninn hvar sem er í heiminum, án tillits til landamæra eða hvort hann hafi verið á höttunum eftir nýrri vinnu.

  • Umboðsskrifstofur MRI WORLDWIDE sameina krafta sína við að finna rétta manninn en þessi vinnubrögð eru einkum stunduð við ráðningar á yfirmönnum, millistjórnendum og sérfræðingum.

  • MRI WORLDWIDE leggur áherslu á að finna heildarlausnir í ráðningarmálum viðskiptavina sinna til að spara þeim vinnu, tíma og fjármuni.

  • Stefna MRI WORLDWIDE er að finna réttan starfsmann í rétt starf fyrir rétt fyrirtæki á réttum tíma, hvar sem er í heiminum.

  • MRI SCANDINVAIA, ,,Norræna netið” var stofnað í maí 1999. Það hefur þegar náð umtalsverðum árangri við að útvega norrænum fyrirtækjum lykilstarfsmenn í Bandaríkjunum og Evrópu og bandarískum fyrirtækjum lykilstarfsmenn á Norðurlöndum.