FRÉTTIR
STARFSMIÐLUN
UM STRÁ MRI
TENGLAR
|
|
STRÁ MRI
Starfsemi STRÁ MRI á Íslandi byggir á nærri tveggja áratuga þekkingu og reynslu í starfsmanna- og
ráðningarmálum fyrir helstu fyrirtæki landsins en STRÁ Starfsráðningar ehf. hafa starfað frá 1994.
-
Aðalmarkmið STRÁ MRI er að auðvelda viðskiptavinum leitina að hæfum starfsmönnum og spara þeim um leið tíma, fyrirhöfn og fjármuni.
-
Sérstaða STRÁ MRI er m.a. fólgin í því að enginn fyrningartími er á umsóknum og fullum trúnaði
er heitið um vörslu gagna.
-
STRÁ MRI hefur tugi þúsunda umsækjenda á skrá. Um er að ræða fólk með haldbæra menntun og góða reynslu, hvort sem er af almennum störfum eða ábyrgðar- og stjórnunarstörfum.
-
Þjónusta STRÁ MRI felst í faglegum vinnubrögðum við milligöngu
ráðninga hvort sem er í stöðu framkvæmdastjóra eða í starf sendils.
-
STRÁ MRI veitir faglega ráðgjöf hvort sem um er að ræða ráðningar í störf til lengri eða skemmri tíma.
-
Gagnabanki STRÁ MRI sparar vinnuveitendum auglýsingaútgjöld og flýtir ráðningarferlinu.
-
Sérþjónusta STRÁ MRI
veitir sérfræðingum og stjórnendum þjónustu við leit að ábyrgðar- og stjórnunarstörfum jafnt á Íslandi sem erlendis.
-
Viðskiptasamningar STRÁ MRI
standa til boða traustum viðskiptavinum. Þeim fylgir aukin þjónusta, s.s. frammistöðumat, hönnun og gerð auglýsinga og afsláttur vegna
birtinga.
|
|
|