STRÁ MRI - Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 - bréfsími 588 3044 - stra@stra.is





 

    

Sérþjónusta

Sérþjónusta STRÁ MRI býður þeim aðilum sem hafa menntun og reynslu af stjórnunar- og ábyrgðarstörfum að skrá sig í gagnabanka Sérþjónustu STRÁ MRI en áhugaverðustu stjórnunarstörfin eru sjaldnast auglýst. Ráðningar í slík störf fara eftir öðrum leiðum og oftast án mikillar umfjöllunar fyrr en eftir að gengið hefur verið frá þeim.

  • Sérþjónusta STRÁ MRI veitir sérfræðingum og stjórnendum þjónustu við leit að ábyrgðar- og stjórnunarstörfum. 

  • Áhersla er lögð á trúnað við vörslu gagna hjá STRÁ MRI. Upplýsingar eru ekki látnar af hendi við þriðja aðila nema að höfðu samráði við viðkomandi umsækjanda. 

  • Sérþjónusta STRÁ MRI vakir yfir áhugaverðum störfum í íslensku atvinnulífi jafnt sem erlendis fyrir þá sem skráð hafa sig í gagnabankann. Jafnframt er reynt að samræma óskir þessara aðila og stjórnenda fyrirtækja sem hlut eiga að máli hverju sinni.

  • Enginn fyrningartími er á skráningum í gagnabanka Sérþjónustu STRÁ MRI og hún er umsækjendum að kostnaðarlausu.

  • Gagnabanki STRÁ MRI sparar vinnuveitendum auglýsingaútgjöld og flýtir ráðningarferlinu.

Sérfræðingum og/eða stjórnendum sem áhuga hafa á að nýta sér þessa þjónustu er bent á að hafa samband við Guðnýju Harðardóttur, gudny@stra.is, eða hafa samband við fulltrúa STRÁ MRI, stra@stra.is, og panta viðtal.